Lýðræðishreyfingin

Spurningar

Expand all

  • Upphaf lýðræðis

  • Lýðræðisþróun á vesturlöndum

  • Hver er munurinn á beinu lýðræði og fulltrúa lýðræði?

  • Hvernig lýðræði er stundað á Íslandi?

  • Hvernig er stjórnskipan Íslands

  • Hvert er hlutverk forseta Íslands?

  • Hvað er rafrænt lýðræði (e-democracy)?

  • Er fulltrúalýðræði hentugasta stjórnarfyrirkomulagið?

FréttaBréf

Subscribe to our newsletter:

Umræðan

All posts

Við færum þér völdin

Fyrst birt í Fréttablaðinu 23.03.09:

Við færum þér völdin

Lýðræðishreyfingin www.lydveldi.is vill moka út spillingu sem hefur þróast undir flokksræðinu. Höfnum bakherbergjamakki Alþingis þar sem flokkseigendafélög eða hagsmunaklíkur stýra þingmönnum flokksins eins og peðum á skákborði og maka síðan krókinn á kostnað almennings.

Ófreskjur lýðskrumara

Stjórnmálaflokkarnir hafa þróast í ófreskjur lýðskrumara. Nánast er sama hvort litið er til hægri, vinstri eða miðju, þeir eru upp fyrir haus í fyrirgreiðslupólitík og gegnsýrðir spillingu sem nú afhjúpast í kjölfar bankahrunsins.

Rót vandans liggur í flokkakerfinu sem mótar nýliða í gamla formið. Kosningaloforð verða að engu í hrossakaupum um ráðherrastóla og völd. Einstaklingar kosnir með nokkur hundruðum atkvæðum á flokksþingi geta endað sem forsætisráðherra. Þjóðin kaus ekki þannig, en vegna gallana í kerfinu hefur flokksvélin tekið af okkur völdin.

Persónukjör, fækkun þingmanna og beint lýðræði

Beint og milliliðalaust lýðræði mun uppræta skúmaskot og hrossakaup á Alþingi. Þingmenn sem ekki hlusta á þjóð sína í beinu lýðræði verða valdalausir.

Lýðræðishreyfingin er kosningabandalag óháðra frambjóðenda sem vinna sjálfstætt með sín stefnumál án flokkafjötra. Okkar kosningabandalag rúmar fólk úr öllum áttum. Andstæður í umdeildum málum, vinstri menn, hægri menn og allt þar á milli sameinast um beint beint lýðræði. Við viljum færa þér, einstaklingnum, valdið til að kjósa um einstök mál á Alþingi óskir þú þess.

Allir geti komið nýju frumvarpi á framfæri

Allir geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum. Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.

Kosið í hraðbönkum

Tilbúin frumörp verði lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert. Hraðbankakerfið verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing.   Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög er gilda fram að næsta þjóðþingi. Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

Haghvæmara og virkara lýðræði

Þingmönnum fækkað í 31 og valdir í persónukosningum.  Alþingi velji ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði skipar ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er. Ráðherrar sitji ekki á Alþingi, ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

Kynntu þér málið nánar á www.lydveldi.is og taktu þátt í prófkjöri á www.austurvollur.is

Facebook DZone It! Digg It! StumbleUpon Technorati Del.icio.us NewsVine Reddit Blinklist Furl it!

Post a comment!

Umræðan

ForumPostsThreadsLast post
Umræðan
Smelltu á linkinn Umræðan að ofan til að taka þátt í almennri umræðu.
99 16 Apr 2009, 03:13 By   

Survey Software Powered By QuestionPro
Polls Powered By MicroPoll
Email Marketing Powered By ContactPro
Suggestion Box Powered By IdeaScale