Gatið í kosningalögum
Gildandi lög um alþingiskosningar gera ekki ráð fyrir einstaklingsframboðum. Lögin voru sett sem rammi fyrir flokkaframboð. Hinsvegar hafa mikilvægar breytingar verið gerðar á löggjöfinni á undanförnum árum sem opnuðu gat í lögunum fyrir einstaklingsframboð. Ljóst er að Alþingi hefur ekki ætlað að opna á þennan möguleika með löggjöfinni og lögin eru sett til að viðhalda flokkaklíkunni.. Nauðsynlegt er því að nota gatið sem opnaðist í lögunum til að koma fram með einstaklingsframboð í samstarfi fleiri slíkra frambjóðenda sem þá bjóða fram undir slíkum lista. Þetta er það sem við ætlum í Lýðræðishreyfingunni ætlum að gera við næstu alþingiskosningar. Við ætlum að nota gatið sem er í kosningalögunum til að umbylta kerfinu.
Pólitísk stefnumál
Frambjóðendur Lýðræðishreyfingarinnar verða óbundnir flokkslínu. Hver frambjóðandi á listanum mun kynna sín stefnumál sem einstaklingsframbjóðandi.. Flokkurinn sem slíkur mun ekki hafa nein sameiginleg stefnumál nema það að þróa og opna fyrir beint lýðræði á Íslandi. Við erum sammála um að við viljum gamla flokkakerfið og klíkuskapinn í kringum það burt, við viljum aukna þátttöku þjóðarinnar í ákvarðanatökum, en önnur pólitísk stefnumál eru hvers frambjóðanda eins og hann kýs að kynna sig og sín baráttumál fyrir sínum kjósendum.
Val á frambjóðendum
Samtals geta 126 manns boðið fram á listum Lýðræðishreyfingarinnar á landsvísu, en samkvæmt lögum eru boðnir fram tveir frambjóðendur fyrir hvert af 63 þingsætum. Hér á vef Lýðræðishreyfingarinnar er hægt að tilnefna frambjóðendur og einnig geta þeir sem óska skráð sín framboð. Þegar nær dregur kosningum munum við ef fleiri en 126 skráningar hafa borist nota háþróað netkosningaforrit til að velja 126 einstaklinga úr þeim fjölda sem hafa skráð sig eða samþykkt sína tilnefningu til framboðs. Netkosningin verður opin öllum landsmönnum en forritið er með innbyggða öryggislykla til að tryggja að hver aðili geti aðeins kosið einu sinni.
Atkvæðaseðillinn og kjör frambjóðanda
Þegar í kjörklefa er komið er mikilvægt að kjósendur Lýðræðishreyfingarinnar séu vel upplýstir um 82. grein kosningalaganna en þar segir:
Kjósendur Lýðræðishreyfingarinnar setja tölustafinn 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem þeir vilja styðja. Þannig hafa þeir komið viðkomandi í fyrsta sætið á listanum á sínum kjörseðli. Nái frambjóðandinn nægum stuðningi til þingsetu, starfar viðkomandi einstaklingur á Alþingi við fullkomið frelsi og án flokkafjötra. Lýðræðishreyfingin mun ekki halda uppi neinni flokkslínu eða reyna að hafa áhrif á pólitísk störf þingmannsins.