Fréttir frá Lýðræðishreyfingunni.
All News
Framboð tilbúin í öllum kjördæmum.
11/04/2009 00:00:00
Lýðræðishreyfingin xP hefur safnað tilskyldum fjölda meðmælenda og frambjóðenda í öllum kjördæmum landsins og verða framboðslistar lagðir fram á þriðjudag.
Vilji er fyrir því í Lýðræðishreyfingunni að hliðra til á einstökum framboðslistum til að opna sæti og möguleika fyrir sjálfstæðismenn sem vilja snúa við blaðinu og taka þátt í að byggja upp nýtt Ísland með heiðarlegum og lýðræðislegum vinnubrögðum.
Þeim sjálfstæðismönnum sem ofbýður spillingin innan gömlu flokkanna og vilja byggja upp nýtt og betra stjórnmálaafl er bent á að hafa samband við Lýðræðishreyfinguna í síma 4500500.