Lýðræðishreyfingin

Um Okkur

Meiri Upplýsingar

Sími: 4500500 - 4962004

Netfang: postur@lydveldi.is


FréttaBréf

Subscribe to our newsletter:

News and Events Section
Skip Navigation LinksUm Okkur » Fréttir

Fréttir

Fréttir frá Lýðræðishreyfingunni.
All News

Guðrún María Óskarsdóttir í framboði

06/04/2009 00:00:00

Guðrún María Óskarsdóttir var einn af stofnendum Lýðræðishreyfingarinnar en hefur síðustu ár verið í ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Frjálslynda flokkinn m.a. sem formaður Landssambands kvenna. Guðrún María er nú komin aftur í Lýðræðishreyfinguna og verður í framboði fyrir xP í komandi alþingiskosningum.

Guðrún María gekk til liðs við Frjálslynda flokkinn eftir að ákveðið var fyrir tæpum áratug að bíða betri tíma með alþingisframboð á vegum Lýðræðishreyfingarinnar. Nú er sá tími kominn er beint og milliliðalaust lýðræði á erindi til þjóðarinnar í alþingiskosningum. Lýðræðishreyfingin er á lokasprettinum að koma saman framboðslistum í öllum kjördæmum landsins.

"Hver vegur að heiman er vegurinn heim og það er okkur sönn ánægja að Guðrún María er kominn aftur heim í Lýðræðishreyfinguna. Guðrún María á eftir að vinna af heilindum fyrir okkar þjóð á Alþingi Íslendinga" segir Ástþór Magnússon sem stjórnað hefur undirbúningi framboðs Lýðræðishreyfingarinnar.

Guðrún María er bóndadóttir úr sveit á Suðurlandi með ættir vestan af Fjörðum. Ekkja og á eitt barn. Guðrún hefur um árabil barist fyrir leiðréttingu í réttindamálum sjúklinga vegna læknamistaka. Hún hefur starfað við skrifstofu og sölustörf hjá SS í 10 ár og nú síðustu misseri sem aðstoðamaður alþingismanns.

Facebook DZone It! Digg It! StumbleUpon Technorati Del.icio.us NewsVine Reddit Blinklist Furl it!

Survey Software Powered By QuestionPro
Polls Powered By MicroPoll
Email Marketing Powered By ContactPro
Suggestion Box Powered By IdeaScale