Fréttir frá Lýðræðishreyfingunni.
All News
Yfirstjórn RÚV kærð til lögreglunnar fyrir kosningaspjöll
05/04/2009 00:00:00
Fréttastofa og yfistjórn Ríkisútvarpsins hefur verið kærð til lögreglunnar fyrir kosningaspjöll gegn Lýðræðishreyfingunni.
RÚV laug um svar Lýðræðishreyfingarinnar:
Í kvöldfréttum í gær afskræmdi fréttastofa RÚV með vísvitandi og meiðandi hætti boðskap Lýðræðishreyfingarinnar þegar flutt var frétt undir fyrirsögninni: „Skattahækkanir líklegar“.
Í fréttaskýringu var sagt: „Allt útlit er fyrir að skattar verði hækkaðir að loknum kosningum. Forsvarsmenn allra stjórnmálahreyfinga nema Framsóknarflokks sögðu slíkt líklegt í leiðtogaumræðum hér í Sjónvarpinu í gærkveldi“ og síðan eru birtir úrdrættir úr svörum allra fulltrúa stjórnmálahreyfinga á fundinum nema Lýðræðishreyfingarinnar.
Lýðræðishreyfingin gaf ekki það svar við þessari spurningu að hækka beri skatta enda erum við með allt aðrar hugmyndir og boðskap um hvernig leysa eigi úr efnahagsvanda þjóðarinnar. En lýðskrumarar RÚV hafa nú vísvitandi blekkt þjóðina og unnið alvarleg kosningaspjöll með því að leggja orð í munn Lýðræðishreyfingarinnar sem gengur þvert á stefnu okkar.
RÚV staðið að margvíslegum kosningaspjöllum. Starfsmaður RÚV á launum í eigin framboði:
RÚV hefur orðið uppvíst að margvíslegum öðrum kosningaspjöllum gegn Lýðræðishreyfingunni. Reynt var að koma í veg fyrir að fulltrúi Lýðræðishreyfingarinnar sæti leiðtogafund í sjónvarpssal. Þá er Lýðræðishreyfingin sniðgengin á kosningavef RÚV, í Silfri Egils, í fréttum og af útvarpsþáttum RÚV.
Þöggun RÚV um Lýðræðishreyfinguna hefur gengið svo langt að jafnvel dagskrárgerðarfólk hefur orðið uppvíst að því undanfarna daga að vita ekki rétt nafn á framboði P listans og því varla hægt að ætlast til að þjóðin viti um framboðið undir slíkri fjölmiðlun. Á meðan hefur öðrum framboðum verið hampað af Ríkisútvarpinu m.a. framboði starfsmanns RÚV Herberts Sveinbjörnssonar formanns Borgarahreyfingarinnar en hann varð uppvís að því í síðasta mánuði að vera í kosningaferðalagi á meðan starfsfólkið á RÚV m.a. í launadeildin hélt að hann væri í vinnunni enda á launum frá Ríkisútvarpinu.
Lýðræðishreyfingin krefst þess að alþingiskosningum verði frestað þar til búið er að skipta út yfirstjórn Ríkisútvarpsins RÚV og þar komin hlutlæg vinnubrögð í samræmi við lög og reglur um Ríkisútvarpið og um kosningar. að öðrum kosti muni Lýðræðishreyfingin leita aðstoðar kosningaeftirlits ÖSE um að kosningarnar verði lýstar ómarktækar og að kosningaeftirlitið setji fram þá kröfu að þær verði ógildar.
Kæra Lýðræðishreyfingarinnar: - Einnig má opna PDF: RUV-kæra-050409
Kæra vegna kosningaspjalla og brota RÚV á lýðræðislegri jafnaðarreglu. Krafa um að alþingiskosningum verði frestað þar til skipt hefur verið um yfirstjórn hjá RÚV. Hlutaðeigandi brotamönnum innan Ríkisútvarpsins verði vikið úr starfi og þeim refsað í samræmi við lög og reglur
5. apríl 2009.
Kæra þessi er send í samriti: Lögreglustjóranum í Reykjavík, Umboðsmanni Alþingis, Útvarpsréttarnefnd, Menntamálaráðuneytinu, Dómsmálaráðuneytinu og OSCE kosningaeftirliti ÖSE
Ofangreindar stofnanir og eftirlitsaðilar taki til sín þau atriði í kærunni sem fellur undir þeirra verksvið samkvæmt eftirfarandi lögum: Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands, Lögum um kosningar til Alþingis, Útvarpslögum og Lögum um Ríkisútvarpið.
Lýðræðishreyfingin kt. 450698-3429 lýsti því yfir í nóvember 2008 að samtökin myndu bjóða fram í alþingiskosningum og hefur fengið úthlutað frá Dómsmálaráðuneytinu listabókstafnum P.
Lýðræðishreyfingin hefur ítrekað síðan í nóvember 2008 reynt að fá aðgang að dagskrá RÚV til jafns við aðra aðila til að kynna sín stefnumál og hugmyndafræði fyrir Íslensku þjóðinni.
RÚV hefur nánast algerlega sniðgengið Lýðræðishreyfinguna í umfjöllun ríkisfjölmiðlanna. Fleiri erindi og kærur hafa vegna þessa verið sendar Útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, Útvarpsréttarnefnd, Menntamálráðherra, Alþingismönnum, Umboðsmanni Alþingis og OSCE/ÖSE.
Þrátt fyrir hafa ítrekað og rækilega vakið athygli á því að verið sé að sniðganga Lýðræðishreyfinguna í umfjöllun RÚV heldur vandamálið áfram. Lýðræðishreyfinginnu er t.d. neitað um aðgang að umræðuþættinum „Silfur Egils“ sem er annar tveggja fastra umræðuþátta um stjórnmál á dagskrá RÚV. Hinsvegar hefur öðrum framboðum og skoðunum en Lýðræðishreyfingarinnar ítrekað, janfvel viku eftir viku, verið hampað í þættinum. Vegna þessa hefur þess verið krafist að Silfri Egils verði vikið úr dagskrá þar til eftir kosningar, en RÚV hefur ekki orðið við þeirri beiðni.
Eftir að senda fleiri kærur og efna til „leiksýninga“ fyrir fjölmiðla við útvarpshúsið til að koma í gang umfjöllun amk einhverra fjölmiðla um hátterni RÚV, tókst loks að fá aðgang að Kastljósi RÚV. En engan vegin með fullnægjandi hætti og hallar verulega á Lýðræðishreyfinguna hvað varðar jafnaðarreglu. Við fengum örfáar mínútur til að skýra stefnumál sem var ekki fullnægjandi. Önnur framboð hafa fengið margfaldan þennan tíma í Kastljósi til að kynna sín stefnumál og skoðanir.
Fleiri klukkutíma útsendingar í þágu framboðs starfsmanns RÚV:
Einstök framboð, önnur en Lýðræðishreyfingin, hafa fengið nær ómældan aðgang að RÚV eins og t.d. Borgarahreyfingin en fundir sem þessir aðilar stóðu fyrir undir nafninu „Opinn borgarafundur“ var margsinnis útvarpað og sjónvarpað af ríkisfjölmiðlunum. Um er að ræða fleiri klukkutíma í útsendingatíma RÚV. Eftir að talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar var borinn út af fundi þessara samtaka fyrir þær sakir að leggja til lýðræðisleg vinnubrögð, skrifaði Lýðræðishreyfingin fleiri erindi til Útvarpsstjóra RÚV þar sem skýrt var frá þessu og óskað eftir sambærilegum aðgangi að útsendingartíma fyrir eigið efni. Útvarpsstjóri svaraði ekki erindunum.
Á launum frá Ríkisútvarpinu í kosningaferðalagi:
Rétt er að geta þess að einn forsvarsmanna þessarar hreyfingar er starfsmaður Ríkisútvarpsins, Herbert Sveinbjörnsson en hann varð uppvís að því í síðasta mánuði að vera á kosningaferðalagi fyrir Borgarahreyfinguna á launum frá Ríkisútvarpinu. Þetta upplýstu starfsmenn RÚV, m.a. launadeildar, þegar spurt var um þetta í útsendingu Lýðvarpsins FM100.5. Skiptiborð RÚV sagði Herbert vera mættan til vinnu og gaf samband við Herbert í gegnum skiptiborð Ríkisútvarpsins en hann sagðist þá sjálfur vera staddur á Akureyri í framboðsferð!
Fréttatilkynningar sniðgegnar:
Nánast undantekningalaust eru fréttatilkynningar Lýðræðishreyfingarinnar sniðgengnar af fréttastofu RÚV og Ríkisútvarpsins á meðan önnur stjórnmálasamtök eru daglega tekin í fréttaumfjöllun.
Vita ekki nöfn allra framboða:
Árangurinn af þessu er svo alvarlegur að jafnvel starfsmenn RÚV hafa orðið uppvísir að því síðustu daga að vita ekki einu sinni rétt nafn á Lýðræðishreyfingunni. Hingað barst netpóstur frá dagskrárgerðarmanni á síðdegisútvarpi RÚV sem kallaði okkar hreyfingu allt öðru nafni en hún heitir. Í föðrunarherbergi rétt fyrir útsendingu svokallaðs leiðtogaúsendingu RÚV þurfti yfirmaður Kastljós að spyrja fulltrúa Lýðræðishreyfingarinnar hvað samtökin heita, hann vissi ekki eða mundi ekki nafn þessarar stjórnmálahreyfingar. Lýðræðishreyfingin verður einnig verulega vör við þetta vandamál á meðal almennings sem upp til hópa fylgist með fréttum og umfjöllun RÚV og vegna þess hvernig ríkisfjölmiðlarnir sniðganga Lýðræðishreyfinguna í umfjöllun veit almenningur nánast ekkert um stefnumál þessara samtaka sem bjóða fram í alþingiskosningum eftir tæpar 3 vikur!
Kjósendur blekktir
Kosningavefur RÚV:
Ekki þarf annað en skoða kosningavef RÚV til að sjá hve alvarlegt þetta mál er. Þar hafa undanfarið verið linkar á öll stjórnmálasamtök nema Lýðræðishreyfinguna.
Á kosningavef Ríkisútvarpsins eru birt viðtöl við leiðtoga stjórnmálahreyfinga annarra en Lýðræðishreyfingarinnar sem algerlega er sniðgengin á þessum vef. Þarna sést með afgerandi hætti hvernig þetta stjórnvald, Ríkisútvarpið, er vísvitandi að veita almenningi í landinu villandi kosningaleiðbeiningar og brjóta Lög um kosningar til Alþingis, Stjórnarskrá, Útvarpslög og Lög um Ríkisútvarpið.
Falsaðar kannanir:
RÚV kostar skoðanakannanir og felur Gallup að senda út spurningar. Þarna hefur þess einnig verið gætt að sniðganga Lýðræðishreyfinguna. Í raun er
um fölsun upplýsinga að ræða, því unnið er úr upplýsingum með þeim hætti að veita þjóðinni beinlínis villandi og rangar upplýsingar um niðurstöður kannana eins og t.d. er þess yfirleitt ekki getið að uppistaðan eru netkannanir sem aðeins rúmur helmingur aðspurðra svarar. Hvað tæpur helmingur landsmanna ætlar að kjósa er því alls ekkert tekið með í þessum könnunum RÚV.
Ósannindi RÚV um símtöl:
Eftir kæru okkar til Útvarpsréttarnefndar um ólögmæt skilyrði RÚV fyrir þátttöku framboða í leiðtogafundi í sjónvarpssal voru sett ný skilyrði. Þegar Lýðræðishreyfingin mætti nýju skilyrðunum tóku starfsmenn RÚV það upp hjá sjálfum sér án samráðs við Lýðræðishreyfinguna að hringja í einstaka frambjóðendur. Komið var til baka og sagt að þessi og hinn könnuðust ekki við að vera í framboði. Í fyrstu neitaði
Reyndu að útiloka Lýðræðishreyfinguna frá leiðtogafundi:
RÚV að upplýsa hverjir héldur slíku fram og settu enn ný skilyrði augljóslega í þeim tilgangi að reyna að útiloka að fulltrúi Lýðræðishreyfingarinnar sæti fundinn í sjónvarpssal.
Það var ekki fyrr en eftir að við höfðum beitt fyrir okkur lögmanni til að fá upplýsingar um þau nöfn sem starfmenn RÚV fullyrtu að segðust ekki vera á framboðslistanum að sannleikurinn kom í ljós. Enginn frambjóðandanna kannaðist við að hafa fengið slíkt símtal frá starfsmönnum RÚV.
Eftir að hafa síðan sent símanúmer til RÚV, fullyrðir amk einn frambjóðandi að starfsmaður RÚV hafi reynt að gera lítið úr framboðinu og reynt að fá hann til að draga nafn sitt af framboðslistanum.
Kosningaspjöll fréttastofu RÚV:
4. Apríl birti RÚV í kvöldfréttum sjónvarps frétt undir fyrirsögninni: „Skattahækkanir líklegar“ og hefst fréttin á þessum orðum: „Allt útlit er fyrir að skattar verði hækkaðir að loknum kosningum. Forsvarsmenn allra stjórnmálahreyfinga nema Framsóknarflokks sögðu slíkt líklegt í leiðtogaumræðum hér í Sjónvarpinu í gærkveldi“ og síðan eru birtir úrdrættir úr svörum allra fulltrúa stjórnmálahreyfinga á fundinum nema Lýðræðishreyfingarinnar.
Lýðræðishreyfingin gaf ekki það svar við þessari spurningu að hækka beri skatta enda erum við með allt aðrar hugmyndir og boðskap um hvernig leysa eigi úr efnahagsvanda þjóðarinnar. En lýðskrumarar RÚV hafa nú vísvitandi blekkt þjóðina og unnið alvarleg kosningaspjöll með því að leggja orð í munn Lýðræðishreyfingarinnar sem gengur þvert á stefnu okkar.
Alþingiskosningum verði frestað:
Það verður að teljast vægast sagt vafasamt að efna til alþingiskosninga í landinu undir slíkri fjölmiðlun og háttsemi ríkisfjölmiðlanna sem raun ber vitni. Þess er því krafist að komandi alþingiskosningunum verði frestað þar til búið er að skipta út yfirstjórn Ríkisútvarpsins RÚV og þar komin hlutlæg vinnubrögð í samræmi við lög og reglur um Ríkisútvarpið og um kosningar.
Annars lýsi kosningaeftirlit ÖSE alþingiskosningarnar ómarktækar:
Verði gengið til kosninga á slíkum fjölmiðlagrunni sem raun ber vitni mun Lýðræðishreyfingin leita aðstoðar kosningaeftirlits Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu (OSCE/ÖSE) um að kosningarnar verði lýstar ómarktækar og að kosningaeftirlitið setji fram þá kröfu að þær verði ógildar.
Virðingarfyllst,
Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon – Sími 4962002 / 6626053 / 4500500 – Netfang: thor@lydveldi.is
Samrit:
Lögreglustjórinn í Reykjavík. Símbréf: 4441015.
OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights. Fax: +48 22 520 0605
Dóms og kirkjumálaráðuneytið. Símbréf: 5527340. Netfang: postur@dkm.stjr.is,
Útvarpsréttarnefnd. Símbréf: 5623068. Netfang: utvarpsrettarnefnd@utvarpsrettarnefnd.is
Menntamálaráðherra: Símbréf: 5623068. Netfang: thkg@althingi.is
Menntamálanefnd Alþingis. Netfang: ragnheidurb@althingi.is
Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: magneam@althingi.is
Umboðsmaður Alþingis. Símbréf: 5106701. Netfang: postur@umb.althingi.is.
Blaðamannafélag Íslands. Símbréf: 5539177. Netfang: bi@press.is
Reporters Without Borders. Fax: +33 1 44838484. Email: rsf@rsf.org
Alþingismenn: Sent á póstlista. Birt á bloggvef Morgunblaðsins: http://lydveldi.blog.is
Úrdráttur úr lögum:
Lög um kosningar til Alþingis
XX.kafli. Óleyfilegur kosningaáróður og kosningaspjöll
e. að gefa út villandi kosningaleiðbeiningar
119. gr. Kærum út af brotum á lögum þessum, að svo miklu leyti sem þau heyra ekki undir úrskurð sveitarstjórna, kjörstjórna eða Alþingis, skal beina til hlutaðeigandi lögreglustjóra og fer um þau að hætti [sakamála].1)
Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands:
73.grein
Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.
Útvarpslög:
9. gr. Lýðræðislegar grundvallarreglur.
Útvarpsstöðvar skulu í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur. Þeim ber að virða tjáningarfrelsi og stuðla að því að fram komi í dagskrá rök fyrir mismunandi skoðunum í umdeildum málum. Þó skal útvarpsstöð, sem fengið hefur útvarpsleyfi í þeim yfirlýsta tilgangi að beita sér fyrir tilteknum málstað, vera óskylt að flytja dagskrárefni sem gengur í berhögg við stefnu stöðvarinnar.
11. gr. Andsvarsréttur.
Þeir aðilar, einstaklingar, félög eða stofnanir, sem telja að lögmætir hagsmunir þeirra, einkum orðspor og mannorð, hafi beðið tjón af því að rangt hafi verið farið með staðreyndir í útvarpsdagskrá, hafa rétt til andsvara á viðkomandi útvarpsstöð eða til annarra jafngildra úrræða. Andsvör skulu send út innan hæfilegs tíma frá því að rök voru færð fyrir beiðninni og á þeim tíma og með þeim hætti sem hæfir þeirri útsendingu er beiðnin tekur til.
12. gr. Kærur vegna 9. og 11. gr.
Telji einhverjir að útvarpsstöð hafi ekki uppfyllt skilyrði 9. og 11. gr. gagnvart þeim og þeim er synjað um að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í dagskrá á þann hátt sem þeir vilja við una geta þeir lagt málið fyrir útvarpsréttarnefnd. Nefndin skal þá, eins fljótt og við verður komið, fella úrskurð um kæruefni, og er sá úrskurður bindandi fyrir aðila.
Lög um Ríkisútvarpið ohf.
II. KAFLI
Hlutverk og skyldur.
3. gr.
Útvarpsþjónusta í almannaþágu.
Hlutverk Ríkisútvarpsins ohf. er rekstur hvers konar útvarpsþjónustu í almannaþágu, svo sem hljóðvarps og sjónvarps, eftir því sem nánar er ákveðið í lögum þessum.
Útvarpsþjónusta í almannaþágu felur í sér eftirfarandi:
4.
Að veita almenna fræðslu og gera dagskrárþætti er snerta málefni lands og þjóðar sérstaklega og með þeim hætti tryggja hlutlæga upplýsingagjöf um íslenskt samfélag.
5.
Að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Gæta skal fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð.
7.
Að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.
9.
Að miða útvarpsefni við fjölbreytni íslensks þjóðlífs, þar á meðal að sinna eðlilegum þörfum minnihlutahópa.