Fréttir frá Lýðræðishreyfingunni.
All News
Lýðræðishreyfingin staðfestir framboð til Dómsmálaráðuneytis
16/03/2009 00:00:00
Fréttatilkynning - 16 mars 2009
Lýðræðishreyfingin hefur í dag skilað undirskriftarlistum til Dómsmálaráðuneytisins og staðfest framboð til alþingiskosninga.
Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar:
1. Beint og milliliðalaust lýðræði:
* Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
* Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
* Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
* Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing.
* Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
* Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.
2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:
* Þingmönnum fækkað í 31.
* Landið verði eitt kjördæmi.
* Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
* Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
* Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
* Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.