Fréttir frá Lýðræðishreyfingunni.
All News
Fjórflokkarnir höfnuðu endurnýjun
15/03/2009 00:00:00
Nánast engin endurnýjun kom úr prófkjörum í gömlu fjórflokkunum. Flokkseigendaklíkur höfnuðu flestum nýjum og frambærilegum frambjóðendum í prófkjörsleiksýningum sínum.
Lýðræðishreyfingin berst nú fyrir því að fá aðgengi að ríkissfjölmiðlunum til að kynna stefnuskrá sína fyrir þjóðinni og koma saman lista í öllum kjördæmum. Sameiginlegt stefnumál okkar lista er beint og milliliðalaust lýðræði, önnur mál eru hvers og eins frambjóðanda sem hann kynnir á eigin forsendum fyrir kjósendum.
Tugir manns skrifuðu undir uppsagnarbréf til Páls Magnússonar útvarpsstjóra, færri komust að en vildu á bréfið sem er í yfirstærð og fylltist á augabragði. Uppsögnin verður afhent mánudag og hljóðar svo:
Uppsagnarbréf
Hr. Páll Magnússon
Þér er hér með sagt upp störfum þar sem þú hefur fótum troðið skyldur þína sem útvarpsstjóri ríkisútvarpsins sem er að gæta jafnræðisreglu og halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur.
Þú hefur virt að vettugi fjölda erinda sem Lýðræðishreyfingin hefur sent til þín og eftirlitsstofnana með óskir um úrbætur. Engin svör hafa borist frá þér þrátt fyrir að málið hafi nú ítrekað verið kært til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu. Ljóst er að þú ert með öllu óhæfur til að annast rekstur ríkisfjölmiðils okkar Íslendinga. Áframhaldandi rekstur Ríkisútvarpsins undir þinni stjórn er líklegt til að þessi áður virðulega stofnun þjóðarinnar verði að athlægi á alþjóðavettvangi. Nú þegar, í kjölfar margumtalaðs Kastljósviðtals við erlendan fræðimann í friðarmálum, er Íslenska ríkisútvarpinu er líkt við fjölmiðla í enræðisríkjum á ráðstefnum og í fyrirlestrum um slík mál.
Lýðræðishreyfingin er tilbúin að skipa nýjan og hæfari útvarpsstjóra og koma Ríkisútvarpinu á réttan kjöl, bæði hvað varðar að koma á lýðræðislegum vinnubrögðum svo og að rétta af fjárhag stofnunarinnar sem virðist í rúst eftir þig. Skorað er á þig Páll að verða við þeim tilmælum að láta af störfum áður en þú veldur þjóðinni meiri skaða en þegar er orðið undir þinni stjórn. Íslenska þjóðin á Ríkisútvarpið og fréttaefnið sem þar er framleitt og sent út. Skýr lög og reglur hafa verið sett um slíkt efni til að gæta lýðræðislegs réttar allra landsmanna. Útilokað er að sætta sig við að misvitrir einstaklingar í stjórnarstöðum Ríkisútvarpsins fótum troði þennan rétt okkar.
Nýr fjölmiðill þjóðarinnar, Lýðvarpið á FM100.5 og frettavakt.is mun senda út fréttir Ríkisútvarpsins ásamt þeim viðbótum sem Lýðvarpinu og hlustendum finnst vanta í þær fréttir hverju sinni. Þannig munum við leitast við að gæta þess að þjóðin fái fái óhlutdræga frásögn og fréttaflutning og þjóðarsálinni sé ekki miðstýrt af annarlegu sjónarmiðum klíkunnar sem ræður Ríkisútavarpinu undir þinni stjórn. Því miður hefur fréttastofa Ríkisútvarpsins svo gersamlega brugðist hlutverki sínu undir þinni stjórn að hingað til lands eru nú væntanlegir eftirlitsmenn ÖSE til að fylgjast með aðdraganda komandi alþingiskosninga, ekki síst til að fylgjast með aðgengi framboða að ríkisfjölmiðlunum.
Ítrekuð er sú krafa að Lýðræðishreyfingin fái að kynna stefnumál sín í Ríkisútvarpinu/RÚV án tafar!
Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin