Lýðræðishreyfingin

Um Okkur

Meiri Upplýsingar

Sími: 4500500 - 4962004

Netfang: postur@lydveldi.is


FréttaBréf

Subscribe to our newsletter:

News and Events Section
Skip Navigation LinksUm Okkur » Fréttir

Fréttir

Fréttir frá Lýðræðishreyfingunni.
All News

Tillaga að stefnuskrá

26/01/2009 00:00:00

1. Beint og milliliðalaust lýðræði:

  • Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi. Skal frumvarp tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
  • Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á sérstöku þjóðþings vefsvæði.
  • Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
  • Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing. 
  • Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
  • Þeir sem ekki óska að greiða atkvæði á Alþingi gætu framselt þingmanni sitt atkvæði.

2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:

  • Þingmönnum fækkað í 31.
  • Landið verði eitt kjördæmi.
  • Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
  • Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
  • Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.

Næstu skref - Framboð Lýðræðishreyfingarinnar:

  • 126 einstaklingsframboð. Beint og milliliðalaust lýðræði er sameiginlegt stefnumál frambjóðenda Lýðræðishreyfingarinnar.
  • Fái Lýðræðishreyfingin nægan stuðning mun hún leggja fram á Alþingi frumvarp um breytingar á stjórnarskrá til að koma á beinu og milliliðalausu lýðræði. Örfáum greinum í stjórnarskrá þarf að breyta til þessa. Í kjölfarið yrði þing rofið eins fljótt og auðið til að boða á ný til kosninga um hina nýju stjórnarskrá.
  • Frambjóðendum Lýðræðishreyfingarinnar er frjálst að hafa einnig önnur baráttumál til viðbótar í sínu farteski sem þeir þá kynna fyrir kjósendum á eigin forsendum og án flokkafjötra.
  • Kjósendur Lýðræðishreyfingarinnar setja tölustafinn 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem þeir vilja styðja í fyrsta sætið á listanum. Sjá nánar hér

Facebook DZone It! Digg It! StumbleUpon Technorati Del.icio.us NewsVine Reddit Blinklist Furl it!

Survey Software Powered By QuestionPro
Polls Powered By MicroPoll
Email Marketing Powered By ContactPro
Suggestion Box Powered By IdeaScale