Lýðræðishreyfingin

Um Okkur

Nánari Upplýsingar

Sími: 496 2004

Netfang: postur@lydveldi.is

FréttaBréf

Subscribe to our newsletter:

About Us Section
Skip Navigation LinksUm Okkur » Stefnuskrá

Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar

Tillaga að stefnuskrá:

 

1. Beint og milliliðalaust lýðræði:

  • Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
  • Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
  • Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
  • Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing. 
  • Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
  • Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:

  • Þingmönnum fækkað í 31.
  • Landið verði eitt kjördæmi.
  • Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
  • Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
  • Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
  • Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

Kosningabandalag og listi Lýðræðishreyfingarinnar:

  • 126 einstaklingsframboð. Beint og milliliðalaust lýðræði er sameiginlegt stefnumál listans.
  • Listinn leggi fram á Alþingi frumvarp um breytingar á stjórnarskrá til að koma á beinu og milliliðalausu lýðræði. Örfáum greinum í stjórnarskrá þarf að breyta til þessa. Í kjölfarið yrði þing rofið eins fljótt og auðið til að boða á ný til kosninga um hina nýju stjórnarskrá.
  • Frambjóðendum Lýðræðishreyfingarinnar er frjálst að hafa einnig önnur baráttumál í sínu farteski sem þeir þá kynna fyrir kjósendum á eigin forsendum og án flokkafjötra.
  • Kjósendur raða upp listanum í kjörklefa með tölusetningu framan við þá frambjóðendur sem þeir vilja styðja. Ef lög um persónukjör verða samþykkt á Alþingi fer þetta fram samkvæmt þeim. Annars sjá hér

Virkjaðu þitt atkvæði - Framkvæmdin eftir kosningar - Nánar hér


Survey Software Powered By QuestionPro
Polls Powered By MicroPoll
Email Marketing Powered By ContactPro
Suggestion Box Powered By IdeaScale