Fréttir frá Lýðræðishreyfingunni.
-
24/04/2009 00:00:00
Hér eru ágætar leiðbeiningar frá Stöð2 um hvernig hvernig þú getur raðað frambjóðendum á kjörseðli.
Full story
-
24/04/2009 00:00:00
Áhugaverð myndbönd með Hauki Haraldssyni frambjóðanda Lýðræðishreyfingarinnar og Eiríki Stefánssyni verkalýðsforingja.
Full story
-
18/04/2009 00:00:00
Lýðræðishreyfingin með 32,5% fylgi og orðin stærstu stjórnmálasamtök landsins samkvæmt nýrri skoðanakönnun á mbl.is
Full story
-
17/04/2009 00:00:00
Landskjörstjórn hefur úrskurðað lista Lýðræðishreyfingarinnar í Reykjavík gilda. Uppákoma útrásarvíkinga og spilltra stjórnmálaflokka til að stöðva Lýðræðishreyfinguna tókst ekki.
Ástþór Magnússon frambjóðandi Lýðræðishreyfingarinnar í Reykjavík norður hefur opinberlega lýst yfir að útrásarvíkingarnir Ólafur Ólafsson í Samskip og fleiri skuli sæta gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn bankahrunsins standi yfir. Þessu mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir fá hún stuðning kjósenda. Einnig að mútuþægni stjórnmálaflokkanna sæti lögreglurannsókn og þar skuli fara fram húsleitir án tafar. Verði Ríkislögreglustjóri og aðrir embættismenn ekki við þessum tilmælum mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir því að embættisskúrkum verði vikið úr starfi.
Full story
-
16/04/2009 00:00:00
Framboðslistar Lýðræðishreyfingarinnar hafa verið samþykktir í öllum kjördæmum nema Reykjavík, en þar reyna útrásarvíkingar að stöðva framboðið. Málið hefur verið kært til Landskjörstjórnar.
Full story
-
15/04/2009 00:00:00
Lýðræðishreyfingin krefst þess að formanni yfirkjörstjórnar Norður verði vikið úr starfi og rannsókn fari fram á tengslum annarra starfsmanna yfirkjörstjórna við útrásarvíkinga og stjórnmálaflokka.
Eftir að framboði Lýðræðishreyfingarinnar var skilað í gær til yfirkjörstjórnar í Reykjavík Norður sem Erla S. Árnadóttir hrl frá Lögmannsstofunni Lex er í forsvari fyrir, bárust símhringingar til annarra kjörstjórna og reynt að fá þær til að ógilda framboð Lýðræðishreyfingarinnar með því að bera fyrir sig smávægilegan formsgalla sem ekki einu sinni er skýr lagastoð fyrir.
Full story
-
11/04/2009 00:00:00
Lýðræðishreyfingin xP hefur safnað tilskyldum fjölda meðmælenda og frambjóðenda í öllum kjördæmum landsins og verða framboðslistar lagðir fram á þriðjudag.
Vilji er fyrir því í Lýðræðishreyfingunni að hliðra til á einstökum framboðslistum til að opna sæti og möguleika fyrir sjálfstæðismenn sem vilja snúa við blaðinu og taka þátt í að byggja upp nýtt Ísland með heiðarlegum og lýðræðislegum vinnubrögðum.
Þeim sjálfstæðismönnum sem ofbýður spillingin innan gömlu flokkanna og vilja byggja upp nýtt og betra stjórnmálaafl er bent á að hafa samband við Lýðræðishreyfinguna í síma 4500500.
Full story
-
06/04/2009 00:00:00
Guðrún María Óskarsdóttir var einn af stofnendum Lýðræðishreyfingarinnar en hefur síðustu ár verið í ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Frjálslynda flokkinn m.a. sem formaður Landssambands kvenna. Guðrún María er nú komin aftur í Lýðræðishreyfinguna og verður í framboði fyrir xP í komandi alþingiskosningum.
Full story
-
05/04/2009 00:00:00
Fréttastofa og yfistjórn Ríkisútvarpsins hefur verið kærð til lögreglunnar fyrir kosningaspjöll gegn Lýðræðishreyfingunni.
Full story
-
02/04/2009 00:00:00
XP.is hefur auglýst stöður þingmanna og ráðherra lausar til umsóknar. Launakjör eru frá kr. 600,000 á mánuði auk ýmissa fríðinda.
Full story
-
28/03/2009 00:00:00
Lýðræðishreyfingin hefur verið úthlutað listabókstafnum P sem stendur fyrir Persónukjör Lýðræðishreyfingarinnar.
Með þvi að kjósa P í komandi alþingiskosningum virkjar þú þitt atkvæði á Alþingi í beinu og milliliðalausu lýðræði en þingmenn Lýðræðishreyfingarinnar munu starfa í takt við rafrænt almannaþing.
Full story
-
20/03/2009 00:00:00
Ástþór Magnússon skýrir frá stefnu Lýðræðishreyfingarinnar í Kastljósi RÚV. Smelltu til að sjá viðtalið
Full story
-
18/03/2009 00:00:00
Áhugaverð útvarpsviðtöl um stefnumál Lýðræðishreyfingarinnar
Full story

-
16/03/2009 00:00:00
Lýðræðishreyfingin hefur í dag skilað undirskriftarlistum til Dómsmálaráðuneytisins og staðfest framboð til alþingiskosninga.
Full story
-
15/03/2009 00:00:00
Nánast engin endurnýjun kom úr prófkjörum í gömlu fjórflokkunum. Flokkseigendaklíkur höfnuðu flestum nýjum og frambærilegum frambjóðendum í prófkjörsleiksýningum sínum.
Full story
-
13/03/2009 00:00:00
Lýðvarpið www.lydvarp.is er byrjað að senda út. Lýðvarpið er þverpólitískur fjölmiðill. Hægt er að hlusta á útsendingu á frettavakt.is og þangað berast einnig fréttir af öllum helstu fjölmiðlum landsins um leið og þær birtast á vefnum.
Útvarpsútsendingar hefjast næstu daga á FM100.5
Full story
-
13/03/2009 00:00:00
Í tilefni þess að boðað hefur verið til alþingiskosninga í dag, mun Lýðræðishreyfingin færa Páli Magnússyni útvarpsstjóra RÚV nýja bifreið kl. 14 í dag, föstudaginn 13 mars, við útvarpshúsið í Efstaleiti.
Full story
-
01/02/2009 00:00:00
Kosningar hafa nú verið ákveðnar 25. apríl 2009. Lýðræðishreyfingin mun bjóða fram lista 126 einstaklinga.
Frambjóðendur Lýðræðishreyfingarinnar hafa beint og milliliðalaust lýðræði sem sameiginlegt stefnumál. Einstakir frambjóðendur geta haft önnur stefnumál með í farteskinu sem þeir þá kynna kjósendum á eigin forsendum án flokkafjötra sem þýðir að þeir geta kynnt og unnið að þeim málum frjálst og óháð.
Hér má prenta út stuðningslista vegna umsóknar um listabókstaf:
Full story
-
26/01/2009 00:00:00
Beint og milliliðalaust lýðræði:
Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi. Skal frumvarp tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á sérstöku þjóðþings vefsvæði.
Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing.
Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi. Þeir sem ekki óska að greiða atkvæði á Alþingi gætu framselt þingmanni sitt atkvæði.
Full story
-
10/01/2009 00:00:00
Össur Skarphéðinsson ræddi við Ástþór Magnússon um beint lýðræði, fjölmiðla og fleira á INNTV. Hér er linkur til að horfa á þáttinn.
Full story