Markmið Lýðræðishreyfingarinnar
Við viljum að Ísland verði leiðandi í þróun á beinu og
milliliðalausu lýðræði. Við viljum að frjálsir einstaklingar verði
kosnir á þing sem ráðgjafar fyrir þjóðina í stað fólks án eigin skoðana
í flokksfjötrum undir misvitrum leiðtogum.
Fyrsta skref okkar í þessa
átt er að setja fram lista við næstu alþingiskosningar og veita þannig
frambærilegum einstaklingum sem vilja taka þátt í stjórnmálum kost á
framboði án þess að gangast undir sérstakar skoðanir eða hugmyndafræði
annarra.
Hver og einn frambjóðandi okkar mun því kynna sín baráttumál
fyrir kjósendum á eigin forsendum án flokkafjötra.
Eina
sameiginlega baráttumál okkar er að þróa
lýðræðið nær þjóðinni. Við viljum endurskoða kosningalög og lög um
fjölmiðla með því markmiði að hver einasti Íslendingur verði fullvalda
og kosið verði milliliðalaust um mikilvæg mál á Alþingi.
Virkjum þjóðina
Lýðræðishreyfingin er breiðfylking sem öllum er opin. Þú getur gert
eins mikið eða lítið og þú óskar. Skorum á þig að mæta á næsta fund
okkar til að kynna þér málin. Sjá Dagskrá á forsíðu um hvenær næsti
fundur er haldinn.
Saga Lýðræðishreyfingarinnar
Lýðræðishreyfingin var stofnuð árið 1998 þegar hópur einstaklinga hafði samband við Ástþór Magnússon um framboð til alþingis, en Ástþór hafði hvatt til þess í forsetakosningum 1996 að Íslendingar hæfu þróun á beinu og milliliðalausu lýðræði. Eftir okkur fundarhöld var ákveðið að ekki væri tímabært að koma fram með slíkt framboð á þeim tíma. Ólíklegt var talið að nægur hljómgrunnur yrði meðal þjóðarinnar fyrir þeim rótttæku breytingum sem Lýðræðishreyfingin boðaði fyrr en eftir að hagkerfishrunið sem Ástþór spáði fyrir um í forsetakosningunum hefði átt sér stað. Einnig var ljóst að aðgengi að fjölmiðlum var mjög takmarkað vegna strangrar hagsmunagæslu ríkjandi stjórnvalda og stuðningsmanna forseta Íslands sem gerðu allt til að hindra að boðskapur Ástþórs kæmist óbrenglaður til þjóðarinnar en hann hafði ítrekað varað við spillingu í stjórnkerfinu.
Boðskapur Lýðræðishreyfingarinnar
Nú er tími Lýðræðishreyfingarinnar runninn upp. Nú horfir Íslenska þjóðin á uppskeruna úr spilltu flokkakerfi og ráðherraræði. Nú má búast við að fjölmörg eyru hafi opnast á meðal landsmanna og hljómgrunnur gæti nú skapast um hin góðu málefni sem Lýðræðishreyfingin og Ástþór Magnússon hafa fram að færa. Nú er tækifæri að umbylta Íslenskum stjórnmálum til forystu í lýðræðis- og friðarmálum. Ekki aðeins mun það leysa vandamálin hér heima, úr getur sprottið mikilvæg útflutningsgrein með þúsundum starfsgilda.
- Myndatexti: Myndin að ofan er frá heimsókn Johan Galtung höfunds handbóka S.Þ. í friðarsamningum, þegar hann í aðdraganda forsetakosninga 2004 flutti erindi í Háskóla Íslands um hvernig forseti Íslands gæti valdið straumhvörfum í friðarmálum og lýðræði á alþjóða vettvangi. Sjá nánar á www.forsetakosningar.is