Lýðræðishreyfingin

www.xp.is

Kosningamiðstöð:

Sími: 4500500
Velja 4 fyrir skrifstofu

Verið velkomin:
Vogasel 1,
109 Reykjavík.

Opið alla daga.

NewsLetter

Subscribe to our newsletter:

Staða þingmanns laus til umsóknar


126 einstaklingar verða valdir í komandi kosningum til starfa á Alþingi.  Þjóðin vill endurnýjun á Alþingi. Nýtt fólk, ný andlit. Stór hluti þjóðarinnar er ósáttur með hve lítil endurnýjun er hjá gömlu fjórflokkunum í þessum kosningum. Heimsþekktur hagfræðingur lýsti því yfir við bankahrunið að betra væri að velja þingmenn af handahófi úr símaskrá en vera með það fólk áfram sem nú situr á Alþingi!

Launakjör:

Þingmenn eru með um 600,000 krónur í laun á mánuði auk ýmissa fríðinda. Nú er þitt tækifæri að sækja um þetta starf. Hafir þú hugsjónir um betra Ísland er nú tækifæri til að sameina kraftana um leið og þú sækir um gott starf. Þingmenn okkar munu fá stuðning frá rafrænu Almannaþingi og því auðveldara fyrir nýliða að vinna góð störf fyrir þjóðina.

Mikill stuðningur í grasrótinni:

Við finnum feiknalegan stuðning í grasrótinni við XP Persónukjör Lýðræðishreyfingarinnar. Í undirskriftarsöfnun skrifar annar hver maður á stuðningslista framboðsins en enn eru laus sæti á framboðslista í flestum kjördæmum.  XP Lýðræðishreyfingin er með eigin útvarpsstöð á FM100.5 og vefnum www.frettavakt.is

Hér að neðan getur þú sótt um sæti á framboðslista:

Survey Software Powered By QuestionPro
Polls Powered By MicroPoll
Email Marketing Powered By ContactPro
Suggestion Box Powered By IdeaScale