Lýðræðishreyfingin

Um Okkur

Nánari Upplýsingar

Sími: 4500500 - 4962004

Netfang: postur@lydveldi.is


FréttaBréf

Subscribe to our newsletter:

About Us Section
Skip Navigation LinksUm Okkur » Framkvæmdin

Beint Lýðræði Framkvæmdin

Úr núverandi kerfi í beint lýðræði:

Kosningarnar í ár veita þjóðinni einstakt tækifæri til að taka fyrstu skrefin til að kynnast beinu lýðræði af eigin raun nái listi Lýðræðishreyfingarinnar mönnum á þing.

 

Þingmenn okkar munu starfa eftir reglum um beint lýðræði á Alþingi og tengjast kjósendum um rafrænt almannaþing og þjóðþing. Sjá skyggnur frá fyrirlestri um þessa hugmynd hér (IE vafri)

 

Þú virkjar þitt atkvæði á þingi með því að forgangsraða málum og gefa þeim atkvæði á rafrænu þingi.

 

Þingmenn Lýðræðishreyfingarinnar vinna síðan eftir því og gefa atkvæði á Alþingi í samræmi við úrslit kosninga á slíkum rafrænum þingum þjóðarinnar. Þannig verða þingmenn Lýðræðishreyfingarinnar beint verkfæri og rödd þjóðarinnar, þitt atkvæði á Alþingi. Þitt atkvæði getur þannig ráðið úrslitum um hvernig málum lyktar á Alþingi Íslendinga.

Almannaþing - www.almannathing.is

Almannaþing er rafræn útgáfa af Alþingi þar sem almenningur getur átt skoðanaskipti um einstök mál og frumvörp, gefið atkvæði með eða á móti, forgangsraðað málum og lagt fram tillögur að nýjum lagafrumvörpum og gefið þeim einkunn. Slíkt kerfi hefur þegar verið þróað af hóp Íslenskra hugbúnaðarsérfræðinga og geta allar stjórnmálahreyfingar notað kerfið. Skoða hér

Rafrænt þjóðþingÞjóðþing - www.thjodthing.is

Á Þjóðþingi kemur þjóðin saman til rafrænna fundar með alþingismönnum og getur tekið þátt í umræðum áður en gengið er til kosninga um þau mál sem liggja fyrir þinginu.

Þjóðþingið mun nota nýja rafræna fundartækni sem þróuð hefur verið í bandaríkjunum. Kerfið hefur þegar verið notað fyrir flokksþing Democratic Party í USA með yfir 40,000 samtímis þátttakendum.

Kosningar um einstök mál:

Nokkrar leiðir er hægt að fara til að kjósa um einstök mál í beinu lýðræði, hér eru þrjú dæmi:

  • Hefðbundin pappírskosning: Eins og við kjósum í dag en dýrasta og seinlegasa leiðin. Nauðsynlegt að hafa þessa aðferð með í byrjun á meðan almenningur lærir nýjar aðferðir.
  • Kosningavélar: Við viljum að hraðbankakerfið verði notað sem kosningavélar. Þeir eru víðast hvar vel aðgengilegir almenningi og búnir fullkomnu öryggi til að útfæra rafrænar kosningar.
  • Internetið: Internetið er ágætt til minniháttar kosninga, en t.d. í alþingiskosningum er sú hætta fyrir hendi að fjölskyldumeðlimir geti haft áhrif á kjósandann sé hann að kjósa heima í stofu.

Survey Software Powered By QuestionPro
Polls Powered By MicroPoll
Email Marketing Powered By ContactPro
Suggestion Box Powered By IdeaScale